Raquelita

Færslur: 2007 Janúar

30.01.2007 01:33

Komin aftur!

Jæja,ég hef ákveðið að opna síðuna aftur. Ástæðan er sú að ég er að fara að taka smá beygju í mínu lífi og er ein af þeim sú að ég er byrjuð á Herbalife og er orðinn dreifingaraðili einnig.

Þannig að ég mun nota þessa síðu einnig til að auglýsa mig.

Nei,ég er ekki að fara að grenna mig.Ég hef bara valið heilbrigðan lífstíl og líður mér ótrúlega vel,satt  að segja bjóst ég ekki við neinu en ég finn mikinn mun á mér. Mig langar bara til að styrkja mig og fá vítamínskammtinn minn sem ég var ekki að fá úr minni daglegu fæðu. Ég var alltaf þreytt og kúrði oft til hádegis með Natan Ivik sem gjörsamlega raskaði svefnvenjum hans.En í dag sprett ég á fætur eins og ekkert sé kl.7.30. bý mér til næringarsjeik handa mér og Natani og tek vítamínin mín.Ég er hætt að vera þreytt,mig finnst meltingin vera orðin betri og mig líður bara vel í líkamanum.Núna er ég byrjuð að fara í reglulega göngutúra á hverjum degi til að fá meira þol.Þeir sem þekkja mig vita að ég er eins og strákur í laginu,en eftir að ég byrjaði í heilsuklúbbnum hjá Herbalife þá er ég búin að fitna að neðan og grennast að ofan.Eða ekki beint grennast,fitan er að fara og vöðvar koma í staðinn.En ekki það að ég sé orðin einhver hot gella,sést enginn þannig munur á mér.Manni líður bara alltaf betur í sálinni þegar maður gerir eitthvað fyrir sjálfan sig!!!

Herbalife er ekki megrunarkúr,heldur þyngdarstjórnun hvort sem að þú vilt grenna þig,fita eða bara massa þig upp þá er þetta tilvalið fyrir þig. Ég veit,ég virka heilaþvegin en þegar maður kynnist þessu og heyrir reynslu frá öðrum þá er þetta góður lífstíll.

Alla vega þá skrifa ég meira seinna. Ætla að drulla mér í rúmið!

  • 1
Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 9
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 17207
Samtals gestir: 10007
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 03:35:35

Um mig

Nafn:

Raquelita

Afmælisdagur:

7.október.

Staðsetning:

Garðinum

Faðir:

Antonio og Róbert

Móðir:

Bára

Tenglar